Hampolía er náttúruleg uppspretta fjölómettaðra fitusýra.
Hún er sérlega auðug af omega-3 fitusýrum, og inniheldur einnig omega-6 fitusýrur.
Auk þess inniheldur hampolía omega-9 fitusýru.
Omega-3 fitusýrur draga úr myndun tríglýceríða í blóði og eru m.a. skráðir sem lyf í Bandaríkjunum við of háum tríglýceríðum.
Fjölómettuðu fitusýrurnar í lýsi eru EPA og DHA. Líkaminn getur myndað EPA úr alfa-linolensýru (ALA) og DHA úr EPA. Fiskiolíur sem innihalda EPA og DHA draga einnig úr myndun tríglýceríða.
Vísindarannsóknir benda til að omega-3 fitusýrur geti haft jákvæð áhrif á hegðun og tilfinningastjórnun og jafnframt dregið úr hættu á vitrænni hnignun og heilabilun síðar á ævinni.
Það er því afar mikilvægt að líkaminn fái nóg af þessum nauðsynlegu fjölómettuðu fitusýrum.
Úr ómettuðum fitusýrum myndar líkaminn s.k. eicosanoíð. Það eru boðefni sem gegna mikilvægu hlutverki í að stýra bólgusvörun, blóðstorknun, ónæmisviðbrögðum og gróanda í líkamanum. Í þeim flokki eru prostanoíð, (prostaglandín (PG), thromboxanar (TX), prostacyclín (PGI)), leukotríenar (LK) og Lipoxin.
Eicosaníðarnir eru fjölmargir og gegna margvíslegum hlutverkum í líkamanum.
Myndun eicosanoíða fer fram með mismunandi ensímum. Cyclooxygenasi (COX) myndar TX, PG og PGI sambönd, en 5-lípoxygenasi myndar LK.
Sum eicosanoíð eru einnig notuð sem lyf, t.d. syntetísku prostaglandínin Misoprostol (Angusta), Alprostadil (Cavarject Dual) og Iloprost (Ventavis).
Thromboxanhemjarar hafa einnig nýst vel í lyfjameðferð, þar á meðal algeng lyf eins og Aspirín og Dipyridamol.
Stýra meðal annars bólgu, blóðflæði og blóðstorknun.
Taka þátt í bólgusvörun og gegna mikilvægu hlutverki í ofnæmi og astma.
Hafa mótverkandi áhrif á bólgu og hjálpa til við að slökkva á bólgusvörun og styðja við gróanda.
Hylkin tryggja fulla verkun og varna því að fitusýrurnar þráni.
Hylkin eru auðveld í neyslu, án lyktar eða eftirbragðs, og henta vel fyrir daglega notkun sem hluta af heilbrigðum lífsstíl.