Octenidín er yfirborðsvirkt efni af gerðinni biguaníð eða bispyridín sem líkist klórhexidíni. Það hefur verið notað í Evrópu til sótthreinsunar á húð síðan 1987, oft í formi "dihydrochloride". Ólíkt klórhexidíni og efnum eins og bensalkóníumklóríði, inniheldur Octenidín ekki eitraða hluta eins og 4-klóranilín. Þetta gerir það öruggara til langtímanotkunar og það er ekki taugaskaðlegt eins og klórhexidín getur verið til lengdar.
Octenidín hefur marga kosti þegar kemur að sótthreinsun:
Til samanburðar má getaþess að Klórhexidín verkar fyrst og fremst á gram-jákvæðar bakteríur. Margar gram-neikvæðar bakteríur hafa þróað ónæmi fyrir því, og einnig fyrir mupirocin (t.d. Bactroban). Þetta dregur úr virkni Klórhexidíns í daglegri notkun.
Octenidín drepur meðal annars:
Virknin hefur verið prófuð samkvæmt stöðlum DIN EN 1040, 1275 og EN14476.
Örverur hafa enn ekki myndað ónæmi gegn Octenidíni
Octenidín hefur víðtæka og stöðuga virkni við fjölbreyttar aðstæður og styður við náttúrulegt varnarkerfi líkamans
Sækni í frumuhimnur
Octenidín hefur mikla sækni í frumuhimnur örvera og veldur leka í frumuvökva þeirra.
Örvar átfrumur
Örvar átfrumur (neutrophila) til að gleypa sýkla.
Virkar við breitt pH gildi
Virkar við pH gildi 1,6–12,2 og
brotnar ekki niður í ljósi.
Þolir erfiðar aðstæður
Þolir hitasteríliseringu upp í 130°C í vatnslausn.
Octenidín hefur BI gildi 1,7–2,1 og stenst þar með kröfur um örverudrepandi virkni og lága frumuskemmd (cytotoxicity).
Mörg eldri efni uppfylla ekki þessi viðmið.
Samkvæmt evrópskum leiðbeiningum (German Consensus, Polish Society for Wound Treatment) eru
eftirfarandi efni talin örugg fyrir sárasótthreinsun:
Örugg efni fyrir sárasótthreinsun
Octenidín (OCT)
Polyhexaníð (PHMB)
Povidon-jóð
(PVP-I)
Natríum hypóklórít (NaOCl)